Nú skrifar Margrét Árnadóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, um nýjar myndir á safninu.
Les Misérables [DVD] : the musical event of a a lifetime in concert / leikstjórn: Laurence Connor, James Powell ; stjórnandi: David Charles Abell. Söngleikur byggður á samnefndri bók Victors Hugo. Söngleikurinn Vesalingarnir er frábær upplifun fyrir alla söngleikjaunnendur. Mjög góðir söngvarar og tónlistarflutnigurinn glæsilegur. Bresk uppfærsla þar sem fagnað er 25 á afmælis sýningarinnar árið 2010. Haldnar voru 2 sýningar í 02 Arena höllinni í London sem einnig voru í beinni útsendingu í bíósölum víða um heim. Kemur virkilega á óvart að þegar söngleiknum lýkur og búið er að klappa fyrir listamönnunum þá mæta leikarar frá fyrstu uppfærlsu (1985) á svið og syngja. Síðan heldur skemmtunin áfram svo að ekki má slökkva á disknum of fljótt. Er myndin inni? Athugaðu í GegniWinter's bone [DVD] / leikstjórn: Debra Granik Fjölskyldudrama og spenna.Bandarísk mynd byggð á samnefndri bók eftir Daniel Woodrell.Myndin hefur hlotið margvísleg verðlaun á ýmsum kvikmyndahátíðum svo sem Berlín og Sundance. Sögusviðið eru fjallahéruð Ozarkfjalla og sérkennileg tengsl þeirra sem búa á svæðinu. Aðalsöguhetjan er 17 ára stelpa, Ree Dolly, en hún ber ábyrgð á fjölskyldunni. Móðir hennar er veik og hin systkynin eru miklu yngri. Dolly neyðist til að leita að horfnum föður sínum sem er amfetamínframleiðandi. Hann hefur sett hús fjölskyldunnar sem tryggingu vegna réttarhalda en brýtur skilorð og týnist. Dolly gengur í gegnum margvíslegar hremmingar í leitinni að föðurnum. Virkilega vel gerð; með betri myndum síðasta árs.Er myndin inni? Athugaðu í Gegni
Cyrus [DVD] / leikstjórn og handrit Jay Duplass og Mark Duplass Gaman og alvara en alls ekki hreinræktuð grínmynd.Aðalpersónan er Cyrus (John C. Reilly) fráskilinn og ennþá mjög háður fyrrverandi eiginkonunni en þau eru miklir vinir. Það eru tímamót í lífi hans þar sem hún er á leið í nýtt hjónaband. Cyrus fer í partí og kynnist Molly (Marisa Tomei) og verður yfir sig ástfanginn. Þau fara að hittast en hún er treg við að bjóða Cyrusi heim. Vandamálið er nefnilega John 21 árs gamall sonur Mollyar. Hann er tónlistarmaður, býr heima og kærir sig ekki um að deila móður sinni með nokkrum öðrum. Frá þeim degi sem John og Cyrus hittast berjast þeir af mikilli hörku um fyrsta sætið í hjarta Mollyar. Myndin er fersk bæði fyndin og sorgleg í bland. Skemmtilegar típur og vel leikin.Er myndin inni? Athugaðu í Gegni
Shanghai [DVD] / leikstjóri Mikael Håfström Spennumynd og dálítið blóðug. Myndin gerist í Shanghai í Kína 1941 þar sem Japanir eru að búa sig undir yfirtöku . Fjórum mánuðum fyrir árás Japana á Pearl Harbour kemur bandaríski njósnarinn Paul Soames (John Cusack) til Shanghai til að liðsinna vini sínum sem er líka njósnari. Strax við komuna fær hann að vita að vinurinn hefur verið myrtur. Soames fer að leita að morðingjanum og flækist óvart inn í baráttu neðanjarðarhreyfingar Kínverja við Japani. Hann uppgötvar hvern svikavefinn á fætur öðrum og veit vart hverjum má treysta. Fín spennumynd um njósnir og laumuspil í anda rökkurmynda (film noir).Er myndin inni? Athugaðu í Gegni
Red [DVD] / leikstjórn: Trygve Allister Diesen, Lucky McKeeSpenna, drama. Brian Cox leikur aðalhlutverkið Avery Ludlow. Ludlow er ekill sem býr einn með hundi sínum Red. Hundurinn er hans helsti vinur og félagi. Avery Ludlow fer oft að veiða við stöðuvatn í grend við heimili sitt með hundinn sér við hlið. Dag nokkurn koma þrír unglingsstrákar (Danny, Harold og Pete) og ætla að ræna peningum af Ludlow. Í ljós kemur að Ludlow er aðeins með 30 dollara á sér en svo smá upphæð gerir Danny forsprakka strákanna fokreiðann. Í bræðiskasti ákveður Danny að skjóta Red hund Ludlow. Ludlow fer heim til Dannys og segir föður hans frá hundsdrápinu og ránstilrauninni. Danny og bróðir hans neita öllu og faðirinn vísar Ludlow á brott. Í framhaldinu reynir Ludlow að kæra málið en það tekst ekki. Þá ákveður hann að taka lögin í eigin hendur. Myndin veltir upp ýmsum siðferðisspurningum. Mjög áhugaverð. Er myndin inni? Athugaðu í GegniThe Mahabharata [DVD] / leikstjóri Peter BrookDrama, fantasíur, HindúatrúSjónvarpsþáttaröð byggð á leikriti Peters Brook en efnið er sótt í samnefndan indverskan ljóðabálk / trúarljóð, sem er eitt elsta ljóð heimsins ritað fyrir u.þ.b. 5000 árum. Þetta verk er ótrúlega hrífandi og alveg einstakt. Er myndin inni? Athugaðu í Gegni
Breskar sjónvarpsseríur Við erum smám saman að bæta við fleiri titlum af sjónvarpsmyndum og seríum frá Bretlandi.Meðal þess nýjasta eru:Sherlock /Breskir sjónvarpsþættir frá árinu 2010/ íslenskur textiDalziel & Pascoe / án íslensk textaInspector Morse / án íslensk textaSherlock Holmes /án íslensk textaPrime suspect / án íslensk textaMarple / (Miss Jane Marple) Byggt á sögum Agatha Christie/ án íslensk texta.Eru seríurunar inni? Athugaðu í Gegni