Borgarbókasafnið og Mannréttindaskrifstofa efna nú til samkeppni um nafn á listverkið. Skilafrestur er til 1. september. Fyrir besta nafnið eru veitt verðlaun, miðbæjarkort að upphæð kr. 10.000. Sendu tillögu til: gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is
Í Söguhring kvenna hittast konur í Borgarbókasafni Reykjavíkur einu sinni í mánuði. Konurnar eru frá öllum heimshornum og koma saman til að deila reynslu sinni sem konur og innflytjendur á Íslandi. Þær skiptast á sögum, fræðast um menningu, bakgrunn og áhugamál hverrar annarrar og styrkja tengslin sín á milli. Hluti samverustundanna er notaður til listsköpunar og að þessu sinni varð list ástralskra frumbyggja höfð til fyrirmyndar. Í árþúsundir hafa þessir frumbyggjar tjáð sögur af uppruna sínum, andlegri leit og sambandinu við landið í myndverkum á líkömum sínum, í sand og hellum. Fyrir fimmtíu árum eða svo tóku þeir einnig að vinna á striga, jafnt einstaklingar sem og hópar listamanna. Þessi list hefur átt þátt í að styrkja samfélög frumbyggja og fært þeim aftur samfélagslegt vald. Þetta listform þótti kjörin leið fyrir konurnar í Söguhring kvenna til að tjá sig á skapandi hátt. Bakgrunnur listaverksins sýnir útlínur Reykjavíkur og myndir kvennanna tengja saman alla þá ólíku menningarheima þær bera með sér. Í kringum rauða punktinn, sem stendur fyrir bókasafnið, er eins konar u-laga form, en meðal ástralskra frumbyggja táknar u-formið konur sem sitja saman.
Listaverkið mun vera til sýnis í aðalsafni Borgarbókasafns frá og með 24. maí. Fyrir utan að njóta þessa litríka listaverks geta gestir og gangandi tekið þátt í samkeppni um nafn á listaverkinu.
Verkið verður notað sem tákn fyrir fjölmenningu í Reykjavík í framtíðinni og mun verða til sýnis í Ráðhúsinu og á öðrum opinberum stöðum borgarinnar.