Fjölmörg börn tóku þátt í að tilnefna bækur til Bókaverðlauna barnanna, sem voru afhent í níunda sinn í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur sunnudaginn 15. maí.
Nokkur börn hlutu viðurkenningu fyrir þátttöku sína og þar á meðal voru þeir Joshua Francis Kingdon og Patrik Írisarson Santos. Þeir fengu miða á Ballið á Bessastöðum sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu. Eftir sýningu var þeim boðið að kíkja baksviðs og tók prinessan sjálf á móti þeim og leiddi þá um sviðið.
Nánar um Bókaverðlaun barnanna
Joshua með pabba sínum
... og Patrick með mömmu sinni
Baksviðs með prinsessunni