Miðvikudaginn 25. maí var Þorgrímur Þráinsson „afhentur“ Laufeyju Lín Bing Jónsdóttur, en hún fékk hann í verðlaun fyrir þátttöku sína í Bókaverðlaunum barnanna. Þorgímru heimsótti Laufeyju og bekkinn hennar í í Álftamýrarskóla og sagði hann frá bókunum sínum og lagði krökkunum lífsreglurnar. Þau spurðu margs svo sem hversu gamall hann væri, um næstu bækur og um feril hans sem fótboltamanns.