Þorkell Már Ingólfsson, bókavörður í Ársafni, er mikill aðdáandi James Patterson og skrifar hér um bækur hans.
Alex Cross´s Trial er eftir James Patterson og Richard Dilallo. Sagan er sögð af leynirögreglumanninum Alex Cross og gerist hún snemma á 20. öld í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Þetta er hörku lögfræðidrama með morðum og skepnuskap enda gerist bókin í umhverfi þar sem kynþáttahatur er gríðarlegt. Ungur lögfræðingur frá Washington er sendur suður eftir til að rannsaka ofbeldisglæpi gegn fólki af afrískum uppruna. Það gerir hann og sækir eitt málið fyrir dómstólum. Það er ekki auðvelt, t.d. er faðir lögfræðingsins dómari í málinu og hefur engan áhuga á að sækja hvítt fólk til saka fyrir afbrot gegn blökkumönnum. Eins og oft hjá James Patterson eru margar persónur ekki allar þar sem þær eru séðar. Bókin er hrikalega spennandi þar sem lögfræðingur með gott hjartalag glímir við rángrimma kynþáttahatara. Alex Cross´s Trial er sextánda bókin í seríunni um þennan ágætæa leynilögreglumann og er hún eina bókin í seríunni sem Patterson skrifar í félagi við annan. Þetta er að mínu mati besta glæpaserían á markaðnum og hvet ég fólk til að lesa helst allar bækurnar, frá fyrstu bókinni Along Came a Spider. Þó svo að hver og ein bók standi ein og sér er gott að lesa þær í réttri röð þar sem þær gerast í rökréttri tímalínu. Galdurinn við þessa seríu er hin frábæra formúla Patterson sem gengur út á það að öðlingurinn Alex Cross glímir við einhver mestu úrþvætti sem komið hafa fyrir í glæpasögum. Óþverrarnir eiga það sameiginlegt með Alex að vera bráðsnjallir og jafn helteknir af eigin glæpaverkum og hann er af rannsókn málanna. Cross-serían hefur ekki verið þýdd eins og t.d. Women´s Murder Club en það er prýðilegt að lesa þessa seríu á frummálinu hvort eð er. Patterson er byrjaður á nýrri seríu Private og lofar fyrsta bókin í röðinni með sama nafni mjög góðu. Paterson fylgir þarna sömu pottþéttu formúlunni og í Cross-seríunni þar sem sómafólk (sem þó er áhugavert :o)) glímir við hundingja af öllu tagi og suma í háum valdastöðum.
Þorkell M. Ingólfsson.