Menningarkort Reykjavíkur gildir á þær menningarstofnanir sem heyra undir Reykjavíkurborg. Tvö fyrir eitt tilboð verður á því frá 1.-17. júní.
Þrjár útgáfur af Menningarkortinu, sem allar verða á tilboði 2 fyrir 1 frá 1. -17. júní. Fréttatilkynning frá Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar:
MENNINGARKORT REYKJAVÍKUR – LISTILEGA EINFALT
Menningarkort Reykjavíkur er nýjung sem menningarstofnanir Reykjavíkur hófu útgáfu á í byrjun þessa árs, sem hagkvæman og aðlaðandi kost fyrir alla sem vilja sækja sér metnaðarfulla og innihaldsríka upplifun allan ársins hring. Óhætt er að segja að viðtökur hafi verið góðar, en þegar hafa rúmlega 7.000 kort selst.
Í tilefni sumarkomu og opnunar Árbæjarsafns hefur Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkur ákveðið að endurvekja „2 fyrir 1 tilboð“ sem boðið var upp á í febrúar, en tilboðið mun nú standa yfir frá 1. til 17. júní. Öll þrjú kortin (blátt, grænt og rautt) verða á tilboði, en útsölustaðir eru Borgarbókasafni Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur og einnig á midi.is.
Nú er lag að fá Menningarkortið á einstökum kjörum, auk þess sem kaupendur Menningarkortsins fara í pott og eiga kost á að vinna vegleg verðlaun síðar á árinu.
Menningarkort Reykjavíkur er árskort sem veitir aðgang að Listasafni Reykjavíkur (Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni), að Minjasafni Reykjavíkur (Árbæjarsafni og Landnámssýningu) og fá handhafar þess einnig bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur. Aðgangur að rúmlega 200 viðburðum og fræðsludagskrám stofnananna er að auki innifalinn í kortinu. Jafnframt þessu veitir Menningarkort Reykjavíkur ýmis önnur fríðindi, en gegn framvísun þess fæst afsláttur í verslunum og veitingastöðum safnanna, í Viðeyjarferju og -stofu, Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og af árskorti Borgarleikhússins, svo eitthvað sé nefnt. Menningarkortið er einnig happdrættismiði, en dregið verður úr keyptum kortum í september og eru veglegir vinningar í boði sem sjá má hér.
Verði kortsins er haldið í algjöru lágmarki, en það kostar aðeins 5.000 kr. Eftir sem áður er ókeypis fyrir börn að átján ára aldri og eldri borgarar og öryrkjar þurfa hvorki að greiða fyrir aðgang að ofangreindum söfnum né fyrir bókasafnskort. Auk Menningarkorts Reykjavíkur eru til sölu árskort sem gilda einungis á Listasafn Reykjavíkur eða Minjasafn Reykjavíkur og kostar hvort um sig 3.000 kr.
Allar upplýsingar um Menningarkort Reykjavíkur má finna hér.
Fullt verð á Menningarkortunum er sem hér segir, en frá 1.-17. júní verða þau
á tilboðinu 2 fyrir 1:
Menningarkort Reykjavíkur - blátt kr. 5.000,-
Menningarkort Listasafns Reykjavíkur - rautt kr. 3.000,-
Menningarkort Minjasafns Reykjavíkur - grænt kr. 3.000,-