Í sumar geta börn tekið þátt í sumarlestri í öllum deildum Borgarbókasafns. Sumarlesturinn fer þannig fram að þegar börn fá lánaða bók geta þau skrifað nafn og símanúmer á laufblöð sem síðan eru hengd á tré sem staðsett eru i söfnunum. Í lok sumars eru nöfn tíu þátttakenda dregin út og þeir verðlaunaðir.
Tilgangurinn er að hvetja börn til að lesa yfir sumarið og viðhalda þannig þeirri lestrarfærni sem þau hafa þegar öðlast í skólanum. Í bókasöfnum er gott úrval bóka við allra hæfi og starfsmenn þeirra eru tilbúnir til að finna skemmtilegt lestrarefni.
Foldasafn
Aðalsafn