Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur bjóða upp á miðbæjargöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl. 20. Lagt af stað úr Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.Dagskrá til útprentunar (pdf 2.17mb)
9. júníSöngur og saltfiskurLjósmyndasafn ReykjavíkurGengið um Grjótarþorpið og gamla Vesturbæinn með Helga Þorlákssyni sagnfræðingi þar sem saga tónlistar, hljómlistamanna, söngvara, kóra og tónskálda verður rakin. Í samstarfi við Háskóla Íslands í tilefni aldarafmælis skólans. 16. júníJón Sigurðsson 200 áraMinjasafn ReykjavíkurGengið verður um slóðir Jóns Sigurðssonar í miðbænum með sagnfræðingunum Guðbrandi Benediktssyni og Helgu Maureen Gylfadóttur.23. júníÚtilistaverk við SæbrautListasafn ReykjavíkurHafþór Yngvason safnstjóri leiðir göngu um strandlengjuna og ræðir um verkin Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason, Íslandsvarðan eftir Jóhann Eyfells, Samstarf eftir Pétur Bjarnason og Fjöruverk eftir Sigurð Guðmundsson.30. júníMaddama, kerling, fröken, frúMinjasafn ReykjavíkurHelga Maureen Gylfadóttir og Siguborg Hilmarsdóttir sagnfræðingar leiða göngu um slóðir 19. aldar kvenna í Kvosinni.
7. júlíReykjavík safaríÖll söfninMenningarlífið og sögulegir staðir í miðborginni verða kynnt á spænsku, pólsku, litháensku, ensku, frönsku og tælensku. Hvar eru leikhúsin, listasöfnin og aðrir skemmtilegir staðir? Hvað er í boði fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna? Dagskránni lýkur með samverustund allra hópanna í Listasafninu.14. júlíKátir eru krakkarBorgarbókasafn ReykjavíkurBókmenntanga fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Skyggnst verður í nokkrar spennandi nýlegar bækur fyrir börn á söguslóðum þeirra og sumir höfundanna slást með í för. Leiðsögumaður er Sigrún Jóna Kristjánsdóttir.21. júlíÁ söguslóðum vinstrihreyfingar í ReykjavíkLjósmyndasafn ReykjavíkurSvavar Gestsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans og formaður Alþýðubandalagsins, og Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, fara um söguslóðir vinstri hreyfingarinnar í Reykjavík. Einnig munu þau kalla til liðs við sig fólk sem kynntist sérstaklega þeim húsum sem koma við sögu.28. júlíKviss Búmm BangListasafns ReykjavíkurFramandverkaflokkurinn Kviss Búmm Bang leiðir göngu um miðborgina þar sem áhersla er lögð á að líta umhverfi okkar nýjum augum. 4. ágústReykjavík bókmenntannaBorgarbókasafn ReykjavíkurReykjavíkur er ekki oft getið í bókmenntum fyrr en á síðustu öld, enda ung borg og þótti lengi ekki merkilegur sögustaður. Í þessari göngu verða þó raktar slóðir bókmennta í miðborginni allt frá söguöld til okkar tíma og litið á mismunandi birtingarmyndir hennar í skáldskap af ýmsum toga. Leiðsögumaður er Úlfhildur Dagsdóttir.11. ágústKvöldganga um LaugaveginnListasafn, Minjasafn, Ljósmyndasafn og Borgarbókasafn Reykjavíkur standa fyrir sameiginlegri kvöldgöngu um Laugaveginn.