Fyrsta Kvosarganga sumarsins verður fimmtudaginn 9. júní kl. 20. Gangan er í boði Ljósmyndasafns Reykjavíkur.
Gengið verður um Grjótarþorpið og gamla Vesturbæinn með Helga Þorlákssyni sagnfræðingi þar sem saga tónlistar, hljómlistamanna, söngvara, kóra og tónskálda verður rakin. Í samstarfi við Háskóla Íslands í tilefni aldarafmælis skólans.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.
Kynntu þér Kvosargöngurnar