Í Kvosargöngunni fimmtudaginn 23. júní leiðir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, göngu um strandlengjuna og ræðir um verkin Sólfarið eftir Jón Gunnar Árnason, Íslandsvörðuna eftir Jóhann Eyfells, Samstarf eftir Pétur Bjarnason og Fjöruverk eftir Sigurð Guðmundsson.
Gangan hefst kl. 20.00 og er lagt upp frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir!Kynntu þér Kvosargöngurnar!