Nokkrar af þeim bókum sem tilnefndar eru til Orange verðlaunanna 2011 eru komnar á Borgarbókasafnið. Orange verðlaunin hafa verið við lýði frá 1996 og eru þau veitt fyrir framúrskarandi skáldsögur kvenna af ýmsum þjóðernum. Skilyrði fyrir tilnefningu er að bækurnar séu skrifaðar á ensku og hafi komið út í Bretlandi árið á undan. Lestu þér meira til um Orange verðlaunin á heimasíðu þeirra!

The Tiger's Wife - Tea Obreht (í Aðalsafni)
Í The Tiger‘s Wife teflir Obreht saman þjóðsögum, fantasíum og raunsæi í snilldarlegri frásögn. Sagan segir frá lækninum Natalie, sem býr í stríðshrjáðu ríki á Balkanskaganum og leitar skýringa á dulafullu dauðsfalli afa síns. Þetta er fyrsta skáldsaga Obreht og hefur hún hlotið verðskuldaða athygli og hlaut m.a. Orangeverðlaunin í ár.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Room - Emma Donoghue (í Aðalsafni, Foldasafni, Ársafni og Kringlusafni)
Jack er fimm ára og býr með mömmu sinni í einu herbergi sem þau hafa ekki lykil að. Þau eru fangar. Bókin er sambland af spennu- og þroskasögu og lýsir því á áhrifaríkan hátt hvernig lítill drengur trúir því að heimurinn fyrirfinnist í einu herbergi. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

Grace Williams Says It Loud - Emma Henderson (í Aðalsafni)
Þetta er saga Grace og segir frá lífi hennar, svikum, sigrum, vonbrigðum og missi en fyrst og fremst frá ástinni einu. Þetta er þó engin venjuleg ástarsaga, enda er Grace engin venjuleg stúlka. Fyrsta daginn hennar á Briar Mental Institute hittir hún Daniel, sem getur vélritað með tánum og deilir með henni sögum, leyndarmálum og gælum.
Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Great House - Nicole Krauss (í Aðalsafni)
Í Great House eru raktar sögur tengdar hlutum í eigu aðila frá mismunandi tímum og mismunandi löndum Sögurnar eða hlutirnir eiga það sameiginlegt að afhjúpa einhvern leyndardóm, og skiptir þá engu hvort um er að ræða skrifborð skálds frá Chile, sem er handtekinn af leynilögreglu Pinochets, hárlokk sem finnst í pappírum deyjandi konu eða þann eina hlut sem vantar í vinnuherbergi gyðings sem var fórnarlamb nasista. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!

The Very Thought of You - Rosie Alison (í Aðalsafni)
Sagan hefst í Englandi í ágúst 1939. Á meðan Hitler undirbýr innrás inn í Pólland er fjöldi barna fluttur frá London til að forða þeim frá yfirvofandi hættu. Anna, sem er átta ára, lendir ásamt öðrum börnum á stóru sveitasetri í Yorkshire þar sem Thomas og Elizabeth Ashton, dularfullt barnlaust par, ráða ríkjum. Anna verður vitni að ýmsum hlutum, sem eru ekki beinlínis ætlaðir börnum, í undarlegu sambandi þeirra. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Annabel - Kathleen Winter (í Aðalsafni)
Í þessari bók tekur Kathleen Winter á kynjaumræðunni á heldur óvæntan hátt. Jacinta og Treadway eignast barn sem er tvíkynja. Til að firra barnið vandræðum ákveður faðirinn að barnið verði strákur, lætur fjarlægja kvenkynfærin og nefnir það Wayne. Wayne vex úr grasi án þess að vita af þessu „hliðar“kyni sínu en hagar sér á margan hátt eins og stelpa með dyggri hjálp móður sinnar. Þetta er fyrsta skáldsaga Winter, en hún sendi frá sér smásagnasafnið boYs árið 2007, þar sem hún rær á sömu mið og veltir fyrir sér þeim atriðum sem skilja kynin að. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
A Visit From the Goon Squad - Jennifer Egan (í Aðalsafni)
Bókin segir sögu Bennie og Sasha. Bennie er fyrirverandi pönkari og núverandi upptökustjórnandi og Sasha er tilfinningarík ung kona sem kemur sér auðveldlega í vandræði. Þó svo að Bennie og Sasha vinni saman vita þau lítið um fortíð hvort annars. Hins vegar fær lesandinn að kynnast viðburðaríku og oft á tíðum erfiðu lífi þeirra og samferðamanna. Er bókin inni? Athugaðu í Gegni!
Þessar bækur eru væntanlegar:

Hearts and Minds - Amanda Craig

Whatever You Love - Louise Doughty

The Road to Wanting - Wendy Law-Yone