Næsta Kvosarganga er fimmtudaginn 30. júní og er hún í umsjón Minjasafns Reykjavíkur. Helga Maureen Gylfadóttir og Siguborg Hilmarsdóttir sagnfræðingar leiða göngu um slóðir 19. aldar kvenna í Kvosinni.
Lagt verður af stað frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 kl. 20.00.
Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir.
Kvosargöngurnar eru samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Listasafns, Ljósmyndasafns og Minjasafns Reykjavíkur. Kynntu þér dagskrána hér!