Nú hefur Ársafn bæst í hóp þeirra útibúa sem bjóða upp á „grænar og góðar″ bækur og fást þær nú í öllum söfnum Borgarbókasafns. Grænu bækurnar hafa fengið góðar undirtektir hjá gestum safnsins, sem finnst þægilegt að kippa með sér áhugaverðri bók sér að kostnaðarlausu og án þess að hafa áhyggjur af skiladegi eða sektum.
Við hvetjum alla til að koma með áhugaverðar og spennandi bækur á grænu borðin okkar og leyfa öðrum að njóta þeirra. Skilyrði er að þær líti vel út og séu áhugaverðar.
Nánar um „grænu og góðu“ bækurnar