Bókmenntaganga fyrir alla fjölskylduna fimmtudagskvöldið 14. júlí kl. 20.
Borgarbókasafn stendur fyrir fjölskyldugöngu fimmtudagskvöldið 14. júlí kl. 20. Sigrún Jóna Kristjánsdóttir og Sunna Björk Þórarinsdóttir leiða gönguna, en í henni verða spennandi nýlegar bækur fyrir börn kynntar á söguslóðum sínum víðs vegar í miðbænum. Einnig munu rithöfundarnir Þórarinn Leifsson og Margrét Örnólfsdóttir hitta göngugesti, Þórarinn á slóðum hinnar kostulegu ömmu Huldar og Margrét á Hótel Holti, þar sem Aþena – ekki höfuðborgin í Grikklandi kemur við á ferðum sínum í samnefndri sögu. Meðal annarra viðkomustaða eru Hólavallagarður, Hljómskálagarðurinn og Reykjavíkurtjörn og verður spjallað um og lesið úr bókum eftir nokkra af okkar vinsælustu höfundum.
Þátttakandur geta svo líka spreytt sig á léttum leik í göngunni sem gengur út á það að koma auga á hvar Valli nokkur er staddur núna. Þrír heppnir krakkar fá síðan bókina um hann í verðlaun, Hvar er Valli núna, en hún kom út fyrir stuttu.
Gangan tekur ríflega klukkustund og eru allir krakkar og fylgdarfólk þeirra velkomin. Lagt verður af stað frá Borgarbókasafni í Grófarhúsi á slaginu kl. 20 og er þátttaka ókeypis.
Kvöldgöngur úr Kvosinni er göngudagskrá á vegum Borgarbókasafns, Listasafns, Ljósmyndasafns og Minjasafns Reykjavíkur.