Föstudaginn 5. ágúst var opnuð sýning á verkum Karolinu Boguslawsku á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15.
Karolina er listfræðingur og vinnur nú að mastersritgerð um náðarvald (charisma) í gjörningalist við Jagiellonian háskólann í Krakow í Póllandi. Hún hefur unnið hjá Starmach Gallery í Krakow og Foksal Gallery í Varsjá í Póllandi. Karolina hefur búið á Íslandi frá 2006 og auk þess að stunda nám sitt, starfar hún sjálfstætt að ýmsum verkefnum við leikhús, kvikmyndir, ljósmyndun, gjörningalist og margs konar listviðburði.
Á sýningunni eru tólf ljósmyndir sem Karolina tók á einfalda myndavél úr plasti, með gleiðu horni eða fiskaaugalinsu (fish-eye lens). Myndavélina hafði hún gefið ungum syni sínum sem reyndist svo ekki hafa áhuga á vélinni þegar til kom. Þegar þau fóru í frí saman ákvað hún þess vegna að nota hana sjálf. Hin einfalda afbökun myndanna gefur þeim áhrifamikinn blæ ævintýra og uppgötvunar. Útkoman er hrífandi blanda af dulúð og fegurð þar sem hefðbundnar reglur ljósmyndunarinnar voru ekki endilega hafðar í huga við myndatökuna. Sýninguna tileinkar hún syni sínum.
Sýningin stendur til ágústloka og er opin á afgreiðslutíma Borgarbókasafns Reykjavíkur, mánudaga - fimmtudaga 10-19, föstudaga 11-18 og um helgar 13-17.
Netfang Karolinu er: karolina.boguslawska@gmail.com
Styrktaraðili er Hans Petersen.