Um níutíu manns mættu í kvöldgöngu úr Kvosinni síðastliðinn fimmtudag, 4. ágúst en gangan var í umsjón Borgarbókasafns.
Yfirskrift göngunnar var Reykjavík bókmenntanna og rakti Úlfhildur Dagsdóttir slóðir bókmennta í miðbænum allt frá söguöld til okkar tíma og benti á mismunandi birtingarmyndir borgarinnar í skáldskap af ýmsum toga. Einar Ólafsson og Sunna Björk Þórarinsdóttir lásu með henni. Svo skemmtilega vildi til að á meðan göngunni stóð barst tilkynning um það að Reykjavík hefði verið útnefnd ein af Bókmenntaborgum UNESCO.