Þessi ör fíni halli Kvöldganga um Laugaveg og nágrenniNæstkomandi fimmtudag, 11. ágúst kl. 20, munu Minjasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafn og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir sameiginlegri kvöldgöngu um Laugaveginn og nágrenni. Jóhannes S. Kjarval sagði í grein í Morgunblaðinu árið 1923: Laugavegurinn er svo formfull og laðandi gata, að hreinasta yndi er að ganga hana, ef hún bara væri hreinlegri en hún er og ef hún væri sléttuð og snyrtilega um hana hugsað frá Smiðjustíg alla leið inn að Rauðárlæk, má segja að gatan lokki mann og seyði. Þessi ör fíni halli, sem laðar augað og tilfinninguna inneftir - inneftir - eða niðureftir á víxl.
Í göngunni verður sagt frá fyrstu árum Laugavegarins, hvernig hann breyttist úr því að vera lágreist íbúðarbyggð með opnum göturæsum yfir í að verða aðalleiðin út úr bænum með tilheyrandi verslun og þjónustu. Þekkt er að listamenn koma sér gjarnan fyrir nálægt aðalgötunum. Í göngunni verður meðal annars skyggnst inn í nokkur listamannarekin gallerí, en einnig rakin brot úr sögu götunnar og menningu hennar.
Gangan er liður í verkefninu Kvöldgöngur úr Kvosinni sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir en jafnframt er hún sú síðasta á þessu sumri. Gangan tekur um klukkustund, en lagt er upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17.
Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.