Fimmtudaginn 11. ágúst verður sögubíllinn Æringi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Sóla sögukona kemur og segir börnum og fullorðnum sögur og leyfir börnunum að koma í bílinn. Sóla er, eins og margir vita, ein af dætrum Grýlu en sker sig úr fjölskyldunni að því leiti að henni þykir afskaplega vænt um börn. Hún er einnig mikil heimskona þar sem hún strauk ung til útlanda og hefur ferðast um allan heim. Þar lærði hún fjöldan allan af sögum og fá börnin núna að njóta þeirra.Bíllinn er staðsettur við hólinn hjá Víkingaskipinu og eru sögustundirnar kl 14.00 og 15.00.
Sóla á góðri stund í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum