Dagana 15. - 17. ágúst verður gagnagrunnurinn Gegnir lokaður vegna kerfisuppfærslu. Á meðan á uppfærslunni stendur er ekki hægt að leita að gögnum, endurnýja lán eða nota sjálfsafgreiðsluvélar. Hægt verður þó að lána út bækur og annað „framhjá“ kerfinu en gestir eru beðnir að stilla fjölda í hóf.