Það eru sjálfsagt margir sem gleðjast yfir því að nú er útlánstími bóka aftur kominn í 30 daga en hann hefur nú verið 21 dagur frá því í vor. Tilgangur með styttingu útlánstímans var fyrst og fremst að stuðla að aukinni hreyfingu safnkostsins. Ákvörðunin um styttinguna var tekin vegna sparnaðarátaks sem allar borgarstofnanir þurftu að gangast undir og ljóst var að safnið gæti ekki keypt sama fjölda bóka og annars efnis og áður. Þessi breyting mæltist ekki ýkja vel og var því sú ákvörðun tekin að færa útlánstímann aftur til fyrra horfs eða í 30 daga.