Nú er vetrarstarfið óðum að fara í gang í Borgarbókasafni. Fjölskyldumorgnar, Sunnudagar eru barnadagar, prjónakaffi og Söguhringur kvenna eru meðal þess sem byrja á næstu dögum.
Fjölskyldumorgnarnir, sem eru ætlaðir fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára, verða eins og áður vikulega í aðalsafni og Gerðubergi. Fyrsti fjölskyldumorguninn verður í aðalsafni fimmtudaginn 1. september kl. 10.30 - 11.30 og í Gerðubergi miðvikudaginn 7. september á sama tíma. Kynntu þér fjölskyldumorgnana nánar!
Prjónakaffi í Ársafni og SólheimasafniÞað er prjónað af miklu kappi alla þriðjudaga kl. 13-15 allan ársins hring í Ársafni. Boðið er upp á kaffi og eru allir velkomnir með handavinnuna.Í Sólheimasafni er prjónakaffi fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 17-19 yfir vetrartímann og verður fyrsta prjónakaffi vetrarsin fimmtudaginn 1. september. Allir velkomnir með handavinnuna, heitt á könnunni. Sunnudagar eru barnadagar byrja af fullum krafti sunnudaginn 4. september og eru í aðalsafni og Gerðubergi. Hér má skoða dagskrá sunnudaganna
Söguhringur kvenna byrjar einnig sunnudaginn 4. september kl. 14. Söguhringurinn hittist á 6. hæð í aðalsafni, Tryggvagötu 15 fyrsta sunnudag í mánuði og er hann ætlaður öllum konum sem áhuga hafa á sögum, sköpun og samveru í fjölmenningarlegu andrúmslofti. Kynntu þér Söguhring kvenna nánar