Borgarstjórinn okkar, Jón Gnarr, heimsótti stofnanir Menningar- og ferðamálsviðs síðastliðinn föstudag ásamt aðstoðarmanni sínum, Birni Blöndal. Þeir byrjuðu á skrifstofu sviðsins þar sem þeir afhentu sviðinu aldeilis fína súkkulaðiköku í tilefni þess að Reykjavík hefur hlotið titilinn Bókmenntaborg UNESCO, en Menningar- og ferðamálasvið hafði veg og vanda af því að sækja um þann titil. Þvínæst komu þeir við i aðalsafni Borgarbókasafns og kíktu á hinar ýmsu hæðir og ýmsu deildir safnsins.
Á skrifstofu sviðsins
Sögubíllinn Æringi skoðaður, Svanhildur Konráðsdóttir, sviðstjóri var með í för
Í tónlistardeildinni
Hattur Snúðs mátaður í barnadeildinni. Í bakgrunni má sjá mynd Kristínar Arngrímsdóttur af persónum í Múmíndal, en myndin prýðir einn vegg barnadeildarinnar