Barnabókmenntasamtökin IBBY á Íslandi hafa valið þrjár bækur á Heiðurslista alþjóðlegu IBBY samtakanna. Heiðurslistinn er birtur annað hvert ár og fá bækurnar á honum mikla alþjóðlega kynningu, bæði á heimsþingi IBBY sem næst verður haldið í Lundúnaborg í september 2012 og á farandsýningu bóka sem ferðast um allan heim í tvö ár.Í flokki frumsaminna skáldverka var tilnefnd bókin Þankaganga – Myslobieg eftir Völu Þórsdóttur og Agnieszku Nowak.Í flokki myndabóka var tilnefnd bókin Arngrímur apaskott og hrafninn eftir Kristínu Arngrímsdóttur.Í flokki þýðinga var tilnefnd bókin Húsið á bangsahorni eftir A. A. Milne í þýðingu Guðmundar Andra Thorssonar.
Það vill svo skemmtilega til að Kristín Arngrímsdóttir er starfsmaður á Borgarbókasafni. Við erum afskaplega hreykin af henni og samgleðjumst við henni innilega.
Sjá nánar á heimasíðu IBBY (International Board on Books for Young People)