Það verður mikið um að vera í vikunni. Bókmenntaborgin Reykjavík tekur virkan þátt í Bókmenntahátíð, sem sett er miðvikudaginn 7. september. Borgarbókasafnið spilar þar stórt hlutverk. Auk þess sem bókum eftir höfundana, sem koma á Bókmenntahátíð, er stillt út í söfnum Borgarbókasafns eru eftirfarandi viðburðir á dagskrá.
Miðvikudagur 7. september kl. 15:00OpnunBorgarstjóri hleypir Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO af stokkunum.Vefurinn Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og rafrænar bókmenntagöngur Borgarbókasafns opna.Miðvikudagur 7. september kl. 17:00„Ég skrifa á brennheitu hrauni”Ljósmyndasýning um ævi frönsku skáldkonunnar Irene Némirovsky, sem lést í fangabúðum Nasista í Auschwitz í seinna stríði. Olivier Philipponat sýningarstjóri og ævisagnaritari Némirovsky flytur ávarp og Denise Epstein, dóttir skáldkonunnar, opnar sýninguna. Alliance française og Borgarbókasafn Reykjavíkur. Aðalsafn, Tryggvagötu 15. Sjá nánar um sýningunaLaugardagur 10. september kl. 13.30-15.30OrðUm ReykjavíkReykjavík er full af orðum og sögum fólksins sem í henni býr. Bókmenntaborgin Reykjavík vill fanga þessi orð með því að safna sögum borgarbúa á vef: minningum, stemningum, ljóðum eða hugleiðingum – einu orði eða mörgum. Borgarstjóri og reykvískir rithöfundar gefa tóninn með því að kríta fyrstu orðin á stéttar borgarinnar og börnum og fullorðnum er síðan boðið að taka þátt í frírri ritsmiðju í beinu framhaldi af því undir handleiðslu rithöfundanna. Aðalsafn: Þórarinn Leifsson Ársafn: Andri Snær Magnason Foldasafn: Kristjana Friðbjörnsdóttir, Gerðubergssafn: Borgarstjóri, Jón Gnarr og Kristín Helga Gunnarsdóttir Kringlusafn: Þorgrímur ÞráinssonAllir eru velkomnir, börn og fullorðnir, og ekki þarf að skrá þátttöku.Laugardagur 10. september kl. 20:00 – 22:00 „Hún er að fara á ball“Bókmenntaganga þar sem því verður fagnað að Reykjavík er orðin Bókmenntaborg UNESCO. Gengið verður frá Grófarhúsi, um Grjótaþorp, Kvosina og Þingholtin og endað á Bókaballi Bókmenntahátíðar í Iðnó. Úlfhildur Dagsdóttir leiðir gönguna og rithöfundarnir Bragi Ólafsson, Sjón, Þórunn Valdimarsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Hallgrímur Helgason og Vilborg Dagbjartsdóttir lesa upp úr verkum sínum á viðeigandi söguslóðum. Í lok göngu flytur Bjartmar Guðlaugsson eigin texta og lag áður en áhugasamir bókmenntaborgarar skella sér í dansinn í Iðnó. Ekkert kostar í gönguna og allir eru velkomnir.
Dagskrá Bókmenntahátíðar