Þann 7. september "ræsti" borgarstjóri rafrænar bókmenntagöngur Borgarbókasafns á vefnum Borgargöngur.is. Til að byrja með eru göngurnar tvær, annars vegar glæpasagnaganga á íslensku og hins vegar almenn bókmenntaganga á ensku sem nefnist Literary Reykjavík. Fleiri göngum verðum síðan bætt við smátt og smátt. Hægt er að hlaða göngunum niður í þar til gerða farsíma og ganga leiðina með leiðsögn eða einfaldlega sitja heima við tölvuna og fara í "sýndargöngu" í netheimum :o).