OrðUm ReykjavíkReykjavík er full af orðum og sögum fólksins sem í henni býr. Bókmenntaborgin Reykjavík vill fanga þessi orð með því að safna sögum borgarbúa á vef: minningum, stemningum, ljóðum eða hugleiðingum – einu orði eða mörgum. Borgarstjóri og reykvískir rithöfundar gefa tóninn með því að kríta fyrstu orðin á stéttar borgarinnar og börnum og fullorðnum er síðan boðið að taka þátt í frírri ritsmiðju í beinu framhaldi af því undir handleiðslu rithöfundanna. Aðalsafn: Þórarinn Leifsson Ársafn: Andri Snær Magnason Foldasafn: Kristjana Friðbjörnsdóttir, Gerðubergssafn: Borgarstjóri, Jón Gnarr og Kristín Helga Gunnarsdóttir Kringlusafn: Þorgrímur ÞráinssonAllir eru velkomnir, börn og fullorðnir, og ekki þarf að skrá þátttöku.