Frá og með 12. september sendir Borgarbókasafn út áminningarbréf um skiladag til þeirra sem eru með netfangið sitt skráð hjá safninu. Áminningar eru sendar út vegna allra safngagna nema DVD diska, sem eru lánaðir út í tvo daga. Það er mikilvægt að hafa netföng rétt skráð og hvetjum við lánþega til að tryggja að svo sé. Forráðamenn fá áminningu vegna gagna barna sinna, svo framarlega sem þeir hafi gefið netfang sitt upp þegar skírteini barnsins var útgefið.