Viltu leggja þitt af mörkum, auka við reynslu þína og kynnast um leið skemmtilegum krökkum?
Sjálfboðaliðar óskast í Heilahristing á Borgarbókasafni. Heilahristingur er heimanámsaðstoð við nemendur í grunnskólum og á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti. Tilgangur verkefnisins er að styðja og styrka nemendur í námi sínu og kynna þeim þá þjónustu sem bókasafnið býður upp á í tengslum við nám, áhugamál, tómstundir og annað. Heimanámsaðstoðin er krydduð með ýmsum skemmtilegum uppákomum, s.s. dansi, kvikmyndasýningum og tónlist. Megináhersla er lögð á að bjóða gott umhverfi sem styður við skapandi barna – og unglingastarf, vekja nemendurna til umhugsunar um framtíðarmöguleika sína, styrkja sjálfsmynd þeirra og gefa þeim möguleika á að hitta vini sína og eignast nýja.
Hér má hlusta á umfjöllun RÚV um Heilahristing ásamt viðtölum við sjálfboðaliða, nemendur og verkefnastjóra
Heilahristingur verður á þremur söfnum Borgarbókasafns í vetur, aðalsafni, Borgarbókasafninu í Gerðubergi og Kringlusafni. Heilahristingurinn byrjar á næstu vikum.
Verkefnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og er unnið að fyrirmynd dansks verkefnis sem heitir "Projekt 100 lektiecaféer". Bókasafnið er hentugt fyrir starfsemi af þessu tagi þar sem það er hlutlaus, afslappaður og óformlegur staður þar sem allir eru velkomnir. Auk þess nýtist safnkostur bókasafnsins vel í námi og leggur starfsfólk sig fram við að aðstoða nemendur og sjálfboðaliða í leit að gögnum og upplýsingum. Reykjavíkurdeild Rauða krossins hefur margra ára reynslu af heimanámsaðstoð og málörvun fyrir yngri bekki grunnskólanna og þekkingu á starfi með sjálfboðaliðum.
Nánari upplýsingar eru á Heilahristingur.is og hjá verkefnastjórum:
Kristín R. Vilhjálmsdóttir,verkefnastjóri Borgarbókasafns, s. 6181420 - kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
Þór Gíslason, verkefnastjóri Rauða Krossins, s. 8972040 - thorgisla@redcross.is