Föstudaginn 16. september kl. 14-18 mun Borgarbókasafn taka þátt í Stæðaæði á Laugaveginum. Stæðaæði er verkefni sem Samtök um bíllausan lífstíl standa fyrir í samvinnu við Reykjavíkurborg um að nýta bílastæðin undir allt annað en bíla. Við munum að sjálfsögðu vera með bókasafnsstæði þar sem við munum bjóða upp á góðar og grænar bækur (bækur úr verkefninu græn bók - góð bók ) og kynna safnið fyrir gestum og gangandi. Við erum búin að fá lánað sérstakt hjól með vagni frá hjólaverkstæðinu Kríu fyrir bækurnar.