Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergssafni og þar er alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Sunnudaginn 18. september kl. 15 mun Origami Ísland, sem er félag áhugafólks um origami, leibeina um gerð origamis í aðalsafni.
Í Gerðubergssafni verður boðið upp á krakkabíó (ekkert popp þó :o)) og hefst það stundvíslega kl. 14.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.