Miðvikudaginn 5. október kl. 17 opnaði sýning í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi á teikningum úr myndasögunni Baby’s in Black eftir þýska myndasöguhöfundinn Arne Bellstorf.
Lesið umfjöllun um söguna og sjáið myndir úr henni hér.
Sýningin og smiðjan eru samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins í Reykjavík og Goethe-Institut í Kaupmannahöfn.
Á sýningunni eru myndir úr fyrsta kafla bókarinnar. Sagan, sem er ævisöguleg, gerist í Hamborg við upphaf sjöunda áratugarins en þá dvöldu Bítlarnir þar og spiluðu á börum og klúbbum. Þar kynntist Stuart Sutcliffe ungri konu, Astrid Kirchherr, sem var listnemi og ljósmyndari og lýsir verkið sambandi þeirra, jafnframt því að teikna upp mynd af lífi ungmenna í Hamborg á þessum tíma. Kirchherr er talin hafa mótað ímynd Bítlanna á þessum fyrstu árum þeirra, og bókin gefur góða innsýn í andrúmsloft og tísku þessa tímabils.
Arne Bellstorf er ungur myndasöguhöfundur sem hefur vakið mikla athygli í heimalandi sínu, ekki síst eftir útgáfu Baby’s in Black, en sagan byggir á viðtölum hans við Astrid Kirchherr. Ensk þýðing á sögunni er nýkomin út og hefur vakið verðskuldaða athygli myndasöguunnenda, en höfðar einnig til breiðari hóps vegna viðfangsefnisins. Arne býr og starfar í Hamborg.
Jafnframt verða endursýndar nokkrar síður úr nýlegum þýskum myndasögum, en sýning á þeim var sett upp í Borgarbókasafni árið 2009.
Í tilefni sýningarinnar verður stillt út efni um og eftir Bítlana og John Lennon á 5. hæð aðalsafns Borgarbókasafns og sýndar kvikmyndir í sýningarsalnum kamesi.
Markmiðið er að sýningin verði svo sett upp á fleiri bókasöfnum víða um land.
Á vefsíðu Goethe-stofnunarinnar má finna viðtal við Arne Bellstorf, sem þýtt hefur verið á íslensku. Frekari upplýsingar um höfundinn má finna á heimasíðu hans, og hér er aukinheldur heimasíða sjálfrar bókarinnar.
Loks má hér sjá örstutt viðtal við Bellstorf og umfjöllun um bókina úr þýska sjónvarpinu Norddeutscher Rundfunk: