Í samvinnu við RIFF-kvikmyndahátíðina sem nú stendur yfir, sýnum við úrval stuttmynda frá ýmsum löndum í kamesi aðalsafns, Grófarhúsi. Sýningar hefjast kl. 14:00 daglega á meðan á Riffhátíðinni stendur. Einstakt tækifæri til að kíkja inn eða tylla sér niður í kamesinu og skoða i rólegheitum það besta úr þessum geira kvikmynda að dómi Riffverja og samstarfsaðila þeirra.