Miðvikudaginn 28. september mun Marín G. Hrafnsdóttir, bókmenntafræðingur og langömmubarn skáldkonunnar Guðrúnar frá Lundi, segja frá lífi og list ömmu sinnar í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Spjallið kallar hún Mátti kerlingin ekki skrifa í friði?
Guðrún frá Lundi var 59 ára þegar hún gaf út sína fyrstu bók árið 1946, hún skrifaði síðan 27 bindi af skáldsögum, nærri 10.000 síður og þá síðustu þegar hún var 86 ára gömul. Hún var metsöluhöfundur í áratugi en ekki voru allir jafnhrifnir af vinsældunum og var hún nefnd drottning kerlingabókanna. Sjálf gerði Guðrún góðlátlegt grín að öllum látunum en hitti naglann á höfuðið þegar hún sagði í einu blaðaviðtali, „Kerling eins og ég má ekki skrifa svona mikið”.
Í Bókakaffinu er spjallað um bækur af ýmsu tagi á léttum nótum á meðan gestir kaffihússins njóta veitinga í notalegu andrúmslofti. Markmiðið er að kynna áhugaverðar bókmenntir og ræða um þær á óformlegan hátt svo og að sýna fjölbreytileika íslenskra bókmennta og sagnamennsku. Bókakaffið er skipulagt í samstarfi Borgarbókasafns Reykjavíkur og Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs.
Bókakaffið er nýjung í dagskrá Gerðubergs en boðið verður upp á dagskrá í kaffihúsinu fjórða miðvikudagskvöld hvers mánaðar frá september fram í byrjun desember. Fyrsta miðvikudagskvöld mánaðarins er Handverkskaffi, annað miðvikudagskvöld er Hverfiskaffi, það þriðja er Heimspekikaffi og það fjórða er Bókakaffi. Það er því um að gera að kíkja við og eiga notalega stund í kaffihúsinu og taka þátt í skemmtilegri og fræðandi dagskrá.
Kynntu þér dagksrá Bókakaffisins