Í nóvember mun fara af stað leshringur í Foldasafni. Gert er ráð fyrir 7-12 manns og eru ekki gerðar sérstakar kröfur um kunnáttu eða menntun, aðeins einlægan áhuga og tíma. Leshringurinn verður sá fjórði hjá Borgarbókasafni en nú þegar eru leshringir í Aðalsafni og í Ársafni. Í Aðalsafni er lögð áhersla á glæpasögur og gamlar og góðar en í Ársafni á konu- og karlabækur. Í Foldasafni verður farið um víðan völl og lesið það sem vekur áhuga hverju sinni!
Hvenær: Fyrsti fundur mánudaginn 7. nóvember kl. 17:15-18.15Fyrsta bók: Þar sem vegurinn endar eftir Hrafn JökulssonUmsjón: Ragnheiður María Adólfsdóttir, netfang: ragnheidur.adolfsdottir@reykjavik.is
Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig hjá Foldasafni í síma 411-6230 eða í tölvupósti til umsjónarmanns: ragnheidur.maria.adolfsdottir@reykjavik.is
Gamlar og góðarAðalsafn, Tryggvagötu 15Þriðji þriðjudagur í mánuði. kl. 17:15-18:15Tengiliður: Friða Magnúsdóttir, netfang: fritha@simnet.is
GlæpasögurAðalsafn, Tryggvagötu 15Fyrsti fimmtudagur í mánuði. kl. 17:15-18:15Umsjón: Ingvi Þór Kormáksson, netfang: ingvi.thor.kormaksson@reykjavik.is
Konu- og karlabækurÁrsafn, Hraunbæ 119Fyrsti miðvikudagur í mánuði, kl. 17:15-18:15Umsjón: Jónína Óskarsdóttir, netfang: jonina.oskarsdottir@reykjavik.is
Þátttakendur útvega sér bækurnar sjálfir