Sænski rithöfundurinn, skáldið og þýðandinn Tomas Tranströmer fær Nóbels-verðlaunin í bókmenntum 2011. Þetta var tilkynnt í Stokkhólmi nú klukkan ellefu. Tomas Gösta Tranströmer fæddist 15. apríl 1931 í Stokkhólmi og hefur lengi verið meðal þekktustu rithöfunda Svía. Hann byrjaði ungur að skrifa og gaf út fyrstu ljóðabók sína, 17 ljóð, árið 1954. Tranströmer hefur ekki aðeins haft mikil áhrif í Svíþjóð heldur er hann vel þekktur um allan heim. Verk hans hafa verið þýdd á fimmtíu tungumál. Nafn hans hefur oft verið í umræðunni þegar rætt hefur verið um Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Margar bækur hans hafa komið út á íslensku, t.d. Sorgargondóll og fleiri ljóð í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur og Tré og himinn í þýðingu Njarðar P. Njarðvík. Pjetur Hafstein Lárusson hefur einnig þýtt ljóð eftir Tranströmer
Tekið af vef ruv.is