Sunnudaginn 23. október kl. 14 segir Ragnheiður Þóra Grímsdóttir sagnaþula börnum og fullorðnum sögur í Gerðubergssafni.Flest höfum við gaman af því að hlusta á góðar sögur. Í okkur öllum býr sagnamaður sem hefur kannski ekki verið virkjaður. Sögur eru líka frábær leið til að vinna með börnum, unglingum og raunar öllu fólki. Með þeim er hægt að miðla þekkingu, vekja til umhugsunar, örva sköpun eða bara skemmta.Ragnheiður Þóra Grímsdóttir hefur verið sérkennari í Grundaskóla á Akranesi frá 1984. Frá 2008 hefur hún starfað að hluta til sem sagnaþula við skólann og staðið fyrir námskeiðum í sagnalist. Hún hefur starfað í Félagi sagnaþula sótt Norræn sagnaþing. Í ár var Norræna sagnaþingið haldið hér á landi og var Þóra í undirbúningsnefnd.Þóra var önnur tveggja sem sigraði í fyrsta SöguSlammi á Íslandi vorið 2010. Þar sagði hún frá upplifun sinni af álfum og tröllum. Hún tók því þátt í Nordisk Mesterskap i StorySlam sem fram fór í Osló í október 2010 og hafnaði þar í fimmta sæti af tíu. Hún var sú eina sem sagði sögu á öðru máli en sínu móðurmáli. Hún hefur skemmt sem sagnaþula hjá mörgum félagasamtökum og við ýmsar hátíðir s.s. á írskum dögum á Akranesi, Víkingahátíð í Hafnarfirði og Brákarhátíð í Borgarnesi. Verið velkomin á sögustund í Borgarbókasafni.