Í tilefni komu Yoko Ono Plastic Ono Band á Iceland Airwaves – og útstillingar í tón- og mynddeild safnsins á einu af þremur minningahylkjum sem gerð voru í fyrra um John Lennon og friðarboðskap hans – verður myndin John Lennon / Plastic Ono Band sýnd í aðalsafni á laugardag. Um er að ræða áhugaverða heimildamynd um gerð samnefndrar plötu sem var eins og kunnugt er fyrsta raunverulega sólóplata Lennons. Meðal annars er rætt er við Lennon sjálfan, Yoko Ono, Ringo Starr og fleiri um tilurð plötunnar, fjallað er um hvert lag hennar og brugðið upp svipmyndum úr hljóðveri. Myndin er textuð á ensku og tekur sýning hennar rúmar 50 mínútur.
Laugardaginn 15. október, kl. 15.00 og kl. 16:00, í kamesinu á fimmtu hæð aðalsafns Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15.
Við vekjum líka athygli á myndlistarsýningunni Baby's in Black á 1. hæð safnsins sem fjallar um Stuart Sutcliffe og Hamborgarár Bítlanna og útstillingu í tón- og mynddeild á margvíslegu efni um og eftir Bítlana og John Lennon.