Fjölskyldumorgunn í Gerðubergssafni miðvikudaginn 26. október kl. 10:30.
Flore Nicolas, jurtalæknir AYURVEDA, mun segja frá því hvernig hægt sé að forðast og lækna kvef barna með kryddjurtum, matvörum og öðrum náttúruvörum sem til eru í eldhúsinu. Hún mun gefa góð ráð um hvernig hægt er að styrkja ónæmiskerfið, vernda nef og eyru og stytta veikindatímann ef barn kvefast.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!