Útgáfu bókarinnar "Trúir þú á töfra?" eftir Vigdísi Grímsdóttur var fagnað í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15, þriðjudaginn 25. október. Um leið var opnuð sýning á myndum Vigdísar sem hún málaði samhliða skrifunum. Myndirnar prýða kettir í öllum mögulegum útfærslum. Sýningin stendur til 14. nóvember.