Lærum að syngja og kveða íslensk alþýðulög í Borgarbókasafni Reykjavíkur – Tryggvagötu 15 sunnudaginn 30. október kl. 15.
Til er fjöldinn allur af íslenskum alþýðulögum um krumma, sum þeirra eru mjög vel þekkt en önnur minna. Borgarbókasafn Reykjavíkur býður upp á skemmtilega og fræðandi dagskrá um krumma fyrir eldri börn leikskóla og yngstu börn grunnskóla.
Dagskráin er í umsjón Báru Grímsdóttur og Chris Foster með söng, hljóðfæraleik, í máli og myndum. Þau eru frábært tvíeki þegar þjóðleg tónlist er annars vegar og því um einstaka upplifun að ræða fyrir börnin.
Krummadagskráin var unnin að frumkvæði Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs þar sem hún hefur verið flutt við miklar vinsældir, (en á þriðja þúsund leik- og grunnskólabörn hafa notið hennar þar síðan vorið 2010.)
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir! Borgarbókasafn