Söguhringur kvenna býður upp á kynningu á lopaprjóni og hekli. Íslenskar og pakistanskar hendur leiða þátttakendur í gegnum kynninguna auk þess sem hægt verður að glugga í bækur og tímarit um handavinnu. Allar og allskonar konur og hendur þeirra eru velkomnar og tilvalið er að koma með eigin handavinnu. Bækur og leikföng fyrir börnin. Boðið verður upp á hressingu frá Mexíkó í tilefni af "dia de los muertos".
Boðið er upp á kaffi, meðlæti og notalegan félagsskap eins og alltaf. Bækur og leikföng fyrir börnin.
Staður og stund: Aðalsafn, Tryggvagötu 15, 6 hæð, sunnudaginn 6.11. kl. 14.00.