Nú stendur yfir sýning á málverkum Halldóru Emilsdóttur (Dóru) í Artótekinu, Borgarbókasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15.
Dóra útskrifaðist frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 1989 en áður hafði hún lokið námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Dóra hefur aðallega málað frá því að hún fór að vinna við myndlist þó þrívíð form hafi líka fangað huga hennar endrum og sinnum. Á síðustu árum hefur hún verið þekkt fyrir stór kringlótt málverk á plexigler. Einnig hefur hún vakið verðskuldaða athygli fyrir hönnun sína undir vörumerkinu Dóru húfur, en undanfarin átján ár hefur hún heklað húfur og fylgihluti s.s. hálstau, trefla og skart.
Málverk Dóru hafa einkennst af óhlutbundnum viðfangsefnum en síðustu mánuði hefur hún horfið aftur til hins fígúratíva, en í byrjun ferils hennar var manneskjan áberandi þáttur í verkunum. Á sýningunni í Artótekinu eru málverk á striga og plexigler, köntuð og kringlótt. Manneskjan er þar viðfangsefnið og sennilega má túlka verkin sem sjálfsmyndir eða líkt og Dóra kallar þær „eins konar sjálfsímyndir“.
Ásamt myndlistinni og hönnuninni starfar Dóra sem kokkur í Listaháskóla Íslands. Einnig hefur hún tekið að sér sýningarstjórn í galleríum og veitingastöðum. Hönnun Dóru fæst á ýmsum stöðum t.d. Listasafni Íslands, Álafossi, Húsi handanna og Kraumi. Dóra hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Íslandi, bæði í myndlist og hönnun. Dóra er félagsmaður í Sambandi íslenskra myndlistarmanna.
Heimasíða Dóru er www. this.is/doraemils
Artótekið leigir út og selur íslenska myndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Artótek - Borgarbókasafn Reykjavíkur – Tryggvagötu 15Opið er mánudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-18 og um helgar kl. 13-17