Lítilsháttar flóð varð í Grafarvogskirkju á föstudaginn var þegar vatn lak frá salerni. Lekinn náði m.a. inn í húsnæði Borgarbókasafns sem staðsett er á neðri hæð kirkjunnar. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á staðinn og hreinsaði upp vatnið. Litlar skemmdir urðu á safnkosti.