Glóðheitar bækur og fjölbreytt dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó 12. og 13. nóvember
Helgina 12. – 13. nóvember standa Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir bókamessu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og í Iðnó. Í fyrsta sinn er haldin glæsileg bókamessa hérlendis þar sem íslenskir útgefendur kynna allt það nýjasta sem kemur út fyrir jólin. Um leið verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri í Iðnó báða dagana, bæði í stóra og litla sal. Einnig verður dagskrá í kaffihúsi Ráðhússins, Öndinni, og sögubíll Borgarbókasafnsins, Æringi, verður á svæðinu. Meðal dagskráratriða má nefna „Græna sófann“, en þar fá ýmsir umsjónarmenn, svo sem Jórunn Sigurðardóttir, Egill Helgason og Druslubókadömurnar Kristín Svava Tómasdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Hildur Knútsdóttir, til sín góða gesti og spjalla um ólíkar bækur. Sigurlaug M. Jónasdóttir kynnir matgæðinga og matreiðslubækur, Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur ræðir við ævisagnahöfunda og Jón Proppé listheimspekingur fer yfir listasöguna á 50 mínútum. Leynifélagskonurnar Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir sjá um metnaðarfulla dagskrá fyrir börn og Borgarbókasafnið býður upp á föndursmiðju með Kristínu Arngrímsdóttur. Að auki verður á dagskránni upplestur úr ljóðabókum og öðrum verkum , jóga fyrir börn og barnanudd, að ógleymdri vísindastund með Ævari vísindamanni. Áhugafólki um stjörnuspeki gefst kostur á að hitta Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking, Kristín Tómasdóttir svarar spurningum stelpna frá A – Ö og svo mætti lengja telja. Kaffiveitingar verða á boðstólum í Iðnó og á Öndinni og gestir geta því átt notalega stund um leið og þeir kynna sér bókaútgáfu ársins í þessum tveimur byggingum við Tjörnina. Nánari upplýsingar um messuna má sjá á vef Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO, http://www.bokmenntaborgin.is/ og þar verður einnig hægt að nálgast ítarlega dagskrá þegar nær dregur.