Kristín Marja Baldursdóttir hlaut í dag, Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, en verðlaunin eru veitt árlega á þessum degi íslenskrar tungu.
Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar segir: ,,Veruleiki íslenskra kvenna er yrkisefni Kristínar Marju og varpar hún í verkum sínum ljósi á líf og störf kvenna, hlutverk, drauma og þrár. Jafnrétti kynjanna var markmið og leiðarljós er hún hóf skáldaferil sinn og má merkja það ljóst og leynt í gegnum verk hennar. Kristín Marja er alþýðuskáld í þeim skilningi að bækur hennar eru lesnar í öllum kimum íslensks samfélags og þjóðin sameinast í sagnaheimi hennar. Þá hafa verk Kristínar Marju hlotið miklar vinsældir erlendis og þá sérstaklega í þýskumælandi löndum.“
Menntamálaráðherra afhenti Kristínu Mörju verðlaunin, 700 þúsund krónur ásamt bókinni Íslenskir fuglar, í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.