Laugardaginn 19. nóvember kl. 13-15 kynna kvenhöfundar verk sín í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi undir yfirskriftinni Kellíngabækur. Kynnt verða ný verk af margvíslegum toga – skáldsögur, fræðibækur, ljóðabækur, ævisögur og barnabækur. Þetta er fjórða árið sem Gerðuberg kynnir ritverk kvenna í samstarfi við undirbúningshóp Fjöruverðlaunanna.
Kynnt verða um fjörtíu verk og hafa nemendur við Háskóla Íslands umsjón með upplestrum. Í anddyri verða bækur seldar á sérstöku tilboðsverði auk þess sem höfundar og forleggjarar kynna bækur sínar.
Í Gerðubergssafni Borgarbókasafnsins verður sérstök barnadagskrá þar sem lesið verður úr barnabókum, krakkar fá tækifæri til að æfa jóga og foreldrar og börn fá sýnikennslu í nuddi.
Í bókasafninu verður einnig sýning á bókum þeirra kvenna sem hlotið hafa Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, síðustu ár.
Það er undirbúningshópur Fjöruverðlaunanna, grasrótarhópur kvenna innan Rithöfundasambands Íslands og Hagþenkis, sem stendur að Kellíngabókum í samstarfi við Menningarmiðstöðina Gerðuberg.
Ilmandi kaffi og girnilegar veitingar eru í boði hjá Gallerí fiski - veitingastofu Gerðubergs.
Undanfarin ár hafa fjölmargir gestir sótt þessa líflegu bókakynningu, notið upplestra og spjallað við höfundana.
Ekki missa af Kellíngabókum í ár! Sjá nánar á vef Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs