Leikin heimildarmynd um Jónas Hallgrímsson verður sýnd í Kamesinu í aðalsafni, Tryggvagötu 15, laugardaginn 19. og sunnudaginn 20. nóvember kl. 15. Myndin var gerð af kvikmyndafyrirtækinu Lífsmynd í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli þjóðskáldsins árið 2007.
Meðal leikenda eru Steinn Ármann Magnússon, Valdimar Flygering og Þröstur Leó Gunnarsson. Sýningartími myndarinnar er 70 mínútur.