Nú er hægt að fyrirgefa eitt og annað á fyrirgefningaveggnum sem settur hefur verið upp í aðalsafni, en veggurinn er framlag Málamyndahópsins sem er að semja leikrit um hugtakið fyrirgefningu.
Gestir eru hvattir til að deila reynslu sinni með því að skrifa setningu sem byggir á einhverju sem þeir hafa fyrirgefið eða ekki fyrirgefið eða einhverju sem sem þeim hefur verið fyrirgefið eða ekki. Atburðurinn má vera stór eða smár, hvert framlag skiptir máli.
Málamyndahópinn skipa: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, Víðir Guðmundsson, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Árni Pétur Guðjónsson og Ragnheiður Steinþórsdóttir.