Landskerfi bókasafna kynnti nýjan leitarvef leitir.is þann 11. nóvember síðastliðinn. Á vefnum býðst aðgengi á einum stað að fjölbreyttum safnkosti bókasafna á Íslandi og efni valinna sérsafna. Kerfið veitir upplýsingar um safnkost og aðgang að rafrænu efni hvort sem um er að ræða texta eða myndrænt efni. Jafnframt eru rafrænar tímaritsgreinar og gagnagrunnar í hvar.is leitarbær í gegnum leitir.is. Gegnir.is sem hingað til hefur verið gagnagrunnur íslenskra bókasafna er hluti af leitir.is og mun hann smátt og smátt hverfa af sjónarsviðinu.