Fjallað verður um glóðvolgar og nýútkomnar bækur í bókakaffi í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi miðvikudaginn 23. nóvember kl. 20.
Starfsmenn Borgarbókasafns, þau Björn Unnar Valsson, Ingvi Þór Kormáksson, Sunna Þórarinsdóttir, Úlfhildur Dagsdóttir og Þorbjörg Karlsdóttir kynna spennandi bækur af ólíku tagi úr bókaflóði haustsins. Áherslan verður lögð á skáldskap fyrir fullorðna, en ef til vill rata einhverjar ævisögur og barnabækur með í bunkann. Kynningin verður á léttum nótum og gestir hvattir til að taka þátt í spjallinu. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar á heimasíðu Gerðubergs